Bókunarkerfi fyrir ferðaþjónustuna Book Iceland


Vantar þig bókunarkerfi?

BookIceland er fullkomið bókunarkerfi fyrir hvers kyns ferðaþjónustuaðila af öllum stærðum og gerðum. Kerfið má nota til þess að halda utan um allar bókanir af vef, gegnum síma og það er jafnframt afgreiðslukerfi.


Í stuttu máli er í kerfinu hægt að stofna ferðir og setja upp brottfaraáætlun, stofna umboðsmenn og gefa þeim aðgang og stofna ‘pickup locations’ fyrir pickup lista þegar ferðamenn eru sóttir. Hægt er að skrá bókanir beint í kerfið, hvort sem þær koma í gegnum síma eða tölvupóst. Kerfið býður upp á skyndibókun sem er tilvalin í afgreiðsluna.


Í þessu skjali eru nánari upplýsingar og hér fyrir neðan eru svo dæmi um skjáskot úr kerfinu. Ef þú vilt fá aðgang til að prófa er um að gera að hafa samband! [Smellið á myndir til að sjá þær stærri]

Upphafsskjár kerfisins sýnir ferðir dagsins og bókanir.

Bókunarformið er skýrt og einfalt, auðvelt að laga að sérþörfum.

Auðvelt er að sjá lista yfir allar brottfarir í kerfinu

Auðvelt er að skilgreina umboðsaðila og gefa þeim bókunaraðgang.

Pickup staðir eru skilgreindir fyrirfram til þess að fyrirbyggja endurtekinn innslátt.

Ferðir eru skilgreindar með grunnupplýsingum í upphafi